Kjúklingavefja
Vefjur úr kími og hörfræjum.
Ég var sko ekkert sérstaklega hrifin af sojahnetusmjöri fyrst þegar ég smakkaði það og átti lengi 6 krukkur upp í hillu sem ég snerti varla. Endaði á að gefa mömmu eitthvað af krukkunum en hún hafði komist upp á lagið með að borða sojahnetusmjörið reglulega og var farin að elska það. Ég fékk svo ástæðu …
Hér er uppskrift að ostakímbrauði og húmmus úr sojabaunum sem gott er t.d. að hafa í hádegismat. Gæti líka verið ágætisnesti. Ostakímbrauð: 40 g kím Sesamfræ Birkisalt frá Saltverk eða sambærilegt Hvítlaukskrydd (smá) Best á allt 5 g Parmigiano Reggiano ostaduft úr poka 5 g Parmigiano Reggiano ostur rifinn með rifjárni 1 dl heitt vatn …
Mig langar til að benda ykkur á hvaða mjöl ég nota við bakstur. Þau eru öll próteinrík og henta þeim sem eru á lágkolvetnamataræði vel. Þetta eru: Sojahveiti Sesammjöl Fituskert möndlumjöl Sesammjölið er próteinríkast en möndlumjölið er kolvetnasnauðast. Athugið að það er verið að nota ákveðna tegund af möndlumjöli en venjulegt möndlumjöl er mun fitumeira …
Ég rakst á sykurlausa og kaloríusnauða íssósu með jarðaberjabragði í Hagkaup um daginn. Þetta var Herseys sósa og hún var í hillunni með öllum hinum íssósunum, eins og ljóti andarunginn sem enginn vildi. Eins og hún hefði verið tekin í sölu fyrir einhver mistök og sæti nú þarna á hillunni og biði eins og kryddin …
Það kann að hljóma kjánalega en það kallar í alvörunni fram góðar minningar hjá mér að drekka vatnsblandað djúsþykkni – helst appelsínu. Það er því ljúft að geta fengið eitthvað svipað þegar maður hættir að borða sykur. Vatn með skvettu af sykurlausu hindberjasírópi (raspberry) frá Tyrani minnir líka svolítið á Ribenadjús. Ég mæli með þessu …
Mig er búið að dreyma um að búa til almennilega sykurlausa ostaköku í hádegismat og þetta er fyrsta tilraunin mín. Hún heppnaðist bara alveg ágætlega og tilraunirnar verða pottþétt fleiri. Ég hlakka til að þróa þessa enn frekar.
Í góða veðrinu í sumar er tilvalið að fá sér óáfengan og sykurlausan mojito. Ég lofa að þessi er algjört nammi.
Einföld sykurlaus jarðaberjasulta sem passar með öllu. Það er tilvalið að nota jarðaber sem eru á síðasta snúning í sultugerðina. Ég vigtaði 150 g jarðaber og skar þau í bita, setti í pott og hitaði upp að suðu. Ég setti skvettu af Hermesetast sætu, stráði slatta af Canderell yfir og slurk af sykurlausu vanillusírópi. Ég …
Ég lét loksins verða af því að gera frappochino og þessi vanillu lattefrappó er alveg sjúklega góður skal ég segja ykkur. Aðferð: Instant kaffi gert úr 1 dl heitu vatni og 2 tsk af kaffi. Kaffið er kælt í ísskáp þar til það er orðið fingurvolgt. Sett í blandara ásamt 80g af g-mjólk og einu …
Prófaði að gera grænkálssnakk í ofni. Það súper gott og auðvelt og tekur bara korter. Grænkál (án stilkanna) Sesamfræ Salt Chilli explosion krydd Avókadóolía Set allt í plastpoka til að blanda því saman. Svo á ofnplötu inn í 180°C heitan ofn í 12 mínútur.
Þessir litlu snakkpokar frá Tyrell’s eru til í Krónunni og innihaldið í þeim vegur 40 grömm. Það er mun hagkvæmara að kaupa stóru pokana en mjög heppilegt að taka þessa litlu með sér ef maður er á ferðalagi. Ég borða aldrei meira ef þessu snakki en 40 g á dag.
Jarðaberjaís er gerður úr allt að 240 g af frosnum jarðaberjum og 100 g af hreinu skyri eða jógúrt ásamt sætuefni. Frosnu berjunum og skyrinu er blandað saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Það borgar sig að borða ísinn strax því hann byrjar að bráðna fljótlega eftir að hann kemur í skálina. Afhverju ætti maður …
Yoyo er farið að bjóða upp á sykurlausan jógurtís með Stevia. Ég fór og keypti ís um daginn og tók með mér heim til að vigta og smakka. Ísinn smakkaðist alveg hreint ljómandi. Ég hefði kannski kosið að hafa það aðeins sætara þegar ég smakkaði fyrst en náttúrulegt jógúrt bragð er aðeins of súrt fyrir minn …
Hér er tilvalin morgunverðarmúffa sem borin er fram með hreinu skyri sem er bragðbætt með sykurlausu vanillu sýrópi.