Hér er ein stórhættuleg pönnukaka sem ég fæ mér á tyllidögum.
Pönnukaka:
- 1 egg
- 15 g sojahveiti
- 1/4 tsk matarsódi
- Sykurlaust vanillu síróp
- 1-2 tsk sykurlaus súkkulaðisósa t.d. frá Tyrani eða Walden Farmers
- Smá hermesetas sætuefni
Pönnukökuna geri ég eins og venjulega sojapönnuköku nema ég bæti við 1-2 tsk af Walden farmers eða Torany sykurlausri súkkulaðisósu og smá sætuefni með. Hræri öllu saman og steiki á pönnukökupönnu.
Rjómi:
Athugið að rjómi er bannaður hjá flestum í fráhaldi og því nauðsynlegt að spyrja sponsor hvort að sojarjómi sé í lagi. Það má vel skipta sojarjómanum út fyrir 100 g gríska jógúrt með sykurlausu French Vanilla sírópi og Hermesetas sætu. Það er alveg jafngott og 100% löglegt í fráhaldi.
Sojarjóminn heitir Soy Whip er tilbúinn þeyttur sojarjómi á sprautubrúsa sem hægt er að kaupa í flestum stórmörkuðum. Það er líka hægt að búa sér til sinn eigin sojaróma úr sojamjólk og jurtaolíu. Ég hef ekki prófað það en er að spá í að prófa það fljótlega. Ég læt ykkur vita hvernig það heppnast síðar.
Skammtur:
- Pönnukaka (75 g prótein) + sojarjómi (25g prótein).
- Ávöxtur: 240 g jarðaber