Kímbrauðsneið með lambakjöti, osti og bernes

Íslendingur á Quiznos, Lambabátur á Hlölla og hvað þetta heitir nú allt saman. Ég er búin að finna upp lækningu við þessum lambalokum og hún felst í þessum rétti.

Ég notaði afgang af grilluðum lambakótilettum ofan á kímbrauðsneið ásamt piparosti, fetaost og bernaisesósu.

  • 40g kímbrauðsneið gerð í örbylgjuofni
  • 50 g lambakjöt
  • 25 g piparostur
  • 20 g fetaostur
  • 15 g bernessósa frá E. Finnsson þynnt með örlitlu vatni

Meðlætið var kál og sveppir en næst mun ég klárlega steikja lauk á pönnu og setja á brauðið líka.

 

Leave a Comment