Hér er uppskrift að ostakímbrauði og húmmus úr sojabaunum sem gott er t.d. að hafa í hádegismat. Gæti líka verið ágætisnesti.
Ostakímbrauð:
- 40 g kím
- Sesamfræ
- Birkisalt frá Saltverk eða sambærilegt
- Hvítlaukskrydd (smá)
- Best á allt
- 5 g Parmigiano Reggiano ostaduft úr poka
- 5 g Parmigiano Reggiano ostur rifinn með rifjárni
- 1 dl heitt vatn
Öllu blandað saman og flatt út á margnota bökunarpappír sem búið er að spreyja með olíu. Mér finnst best að leggja plastfilmu ofan á deigið og nota hendurnar til að fá það eins þunnt og mögulegt er.
Eldað við 180°C í ofni í 20-30 mínútur. Fylgist vel með því þegar það byrjar að brenna gerist það frekar hratt.
Húmmus:
- 75 g niðursoðnar sojabaunir
- 1 tsk Tahini (sesamsmjör)
- Sítrónusafi
- 40 g sólþurrkaðir tómatar (olían þerruð af)
- 10-15 g olífuolía
- 1 dl vatn
Hakka allt saman í blandara þar til hummúsin er orðin mjúk og tómatarnir og baunirnar mynda ekki kekki.
Gott að bera t.d. fram með 25 g fetaosti og 120 g af hráum gulrótum.