Kjúklingur með mildri karrísósu

Það er tilvalið að nýta  afganga í þennan rétt.  Ég notaði að þessu sinni afganga af kjúklingi og smjörsteiktu grænmeti frá kvöldinu áður.

Setja olíu à pönnu til að steikja úr. Ég nota avókadó olíu. Saxa lauk (50 g) og skella á pönnuna. Svo bætti ég við hvítlauk, chili og rauðlauk. Ég kaupi það allt frosið og saxað í litlum pokum sem fást í Bónus. Því næst setti ég 1-2 tsk af Mild curry paste frá Patask og ca 2 dl af vatni.

Ég skar niður og vigtaði 110 grömm af kjúkling og skellti á pönnuna. Bætti svo eldaða grænmetinu út í og lét mála þarf til allt var orðið vel heitt.

Öllu hellt í djúpan disk og að lokum setti ég 40 g af grískri jógúrt út á réttinn.

 

wpid-wp-1448245583369.jpg

 

Leave a Comment