Hveitikíms-nachos með eðlu

Þessi eðla er eðal og nachosið er gott meðlæti.

Hveitikíms nachos:
– 50 g hveitikím
– 10 g sesamfræ
– mexoico krydd frá Søstrene Grene
– smá salt
– 2 dl heitt vatn

Öllu blandað saman, flatt út á margnota bökunarpappír og bakað á 180℃ í 30 mínútur.

Eðla:
– 50 g 11% hreinn Philadelphia ostur
– 2 msk salsa
– 10 g rifinn ostur

Smurosturinn er settur í lítið eldfast mót, svo salsa sósan yfir og að lokum rifni osturinn. Sett í örbylgjuofn í 1-2 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

image

image

image

image

Leave a Comment