Pastalaust lasagne og hvítlauksbrauð

Mjög gott hakk og grænmetis lasagne fyrir einn með kotasælu og hvítlauksbrauði.

Lasagne:

  • Nautahakk
  • Gulur laukur
  • Sveppir – 1 askja
  • Rauð paprikka
  • Spergilkál (broccholi) – lítill haus
  • Eggaldin (1/2)
  • Hunts pizza sósa
  • 1 dl heitt vatn
  • Salt og pipar
  • Avókadóolía
  • Kotasæla – 20 g
  • Rifin ostur – 10 g

Kryddið hakkið og steikið á pönnu. Ég steiki alltaf mikið umframmagn af hakki til að eiga daginn eftir á pizzu, í samloku eða eitthvað annað til að taka með í nesti í vinnuna. Þegar hakkið er tilbúið vigta ég 70 g í skál og bæta vel af Huntz pizza sósu út á (2 msk) og 1 dl af heitu vatni. Hrærið pizzusósunni og vatninu vel saman við hakkið.

Skerið grænmetið í hæfilega jafna og stóra bita og steikið í smá olíu í potti eða á pönnu. Kryddið með herbarmare salti og pipar. Þegar grænmetið er tilbúið vigtið þá 300 g af grænmeti og blandið saman við hakksósuna.

Notið ostaskera eða mandolín til að skera eggaldinð í þunnar sneiðar til að nota í stað lasagne pastaplata. Vigtið 60 g af eggaldin sneiðum.

Takið lítið eldfast mót og setjið smá olíu í botninn. Ég nota avókadó hitaþolna olíu. Því næst legg ég eitt lag af eggaldin sneiðum í botinn svo hakksósu yfir, svo annað lag af eggaldin og hakksósu yfir. Því næst set ég kotasæluna yfir hakksósuna og svo rifna ostinn á toppinn. Þetta er svo bakað í ofni í ca. 10-15 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og blandan er orðin heit í gegn.

Gott er að bera þetta lasagne fram með hvítlaukskímbrauði

Hvítlaukskímbrauð með hvítlaukssmjöri: 

  • 30 g hveitikím
  • 2 tsk sesam fræ
  • 2 hvítlauksgeirar – rifnir
  • herbamare
  • pizza krydd eða oregano
  • heitt vatn (60-100 ml)
  • 30 g smjör

Blandið öllu saman í skál. Setið olíu á örbylgjudisk og myndið brauð eða köku úr deiginu. Kryddið með oregano eða pizzakryddi ofan á. Bakið í örybylgjuofni í 3 mín á annarri hliðinni, snúið svo brauðinu við og bakið á hinni hliðinni í 30-60 sek. Ristið að lokum í brauðrist á meðalstillingu.

Bræðið 30 g af smjör í litlum potti ásamt smá hvítlauk til að búa til hvítlaukssmjör. Hellið smjörinu svo yfir hvítlauksbrauðið og lasagnað.

image

image

image

image

image

Leave a Comment