Þessar brauðbollur er best að baka í pörum því hver bolla þarf 1/2 egg (30 g) og fást því tvær bollur úr hverju eggi. Það hentar mér mjög vel að fá mér annaðhvort tvær brauðbollur með áleggi í hádeginu eða eina með smjöri á kvöldin.
Innihald per brauðbollu:
- 30 g hveitikím
- 30 g egg
- 20 g AB mjólk
- 1-2 tsk sesam fræ
- 1 tsk kúmen fræ
- Herbamare salt
- Best á allt kryddið eða sambærileg kryddblanda
- Matarsódi á hnífsoddi
- 2 msk vatn eða sykurlaust banansíróp ef þið viljið bananabrauð.
Ég byrja á því að brjóta egg í skál og píska það aðeins saman. Svo blanda ég öllum þurrefnunum saman í skál og passa að vigta allt saman rétt. Því næst set ég AB mjólkina og að síðustu vigta ég 30 g af pískaða egginu út í blönduna. Restina af egginu nota ég svo í næstu bollu.
Mér finnst ágætt að búa til nokkrar svona brauðbollur í einu og ég baka þær í sílikon formi fyrir sex múffur. Það smellpassar.
Brauðbollurnar þarf að baka í 200°C heimum ofni í 35 mín.
Bollurnar er auðvitað best að borða heitar með smjöri en það er vel hægt að geyma þær í nokkra daga í ísskáp til að taka með í nesti í vinnuna næstu daga. Svo má líka frysta þær til að geyma þær eitthvað lengur.