Mér finnst erfitt að borða 240 g af bláberjum í morgunmat en það er ekkert mál þegar þau eru komin í gott búst. Þetta einfalda búst inniheldur 240 g bláber, 100 g skyr eða ab mjólk og 1 lúku af klaka. Öllu mixað saman í Nutribullet blandara í stutta stund. Ef of mikið af klökum eru notaðir þá verður bústið svolítið búðingslegt en þá er gott að þynna það með vatni.