Skinku, beikon og aspasbaka

Tiltölulega einföld baka sem hægt er að gera í ofni. Blanda saman einu eggi og 20 g af grískri jógúrt. Vigta 100 g apsas úr dós, 10 g steikt beikon, 20 g 98% skinku og 13 g rifinn Gouda ost. Öllu nema ostinum bætt út í eggjablönduna og svo sett í lítið eldfast mót. Rifna ostinum er svo stráð ofan á. Þetta er svo sett inn í ofn á 200°C og bakað í ca. 20 mínútur eða þar til bakan er bökuð í gegn.

Borið fram með klettakáli, tómötum og rauðri paprikku (140 g).

tumblr_nw2busfldH1ub5083o2_1280 tumblr_nw2busfldH1ub5083o1_1280

Leave a Comment