Saltfiskur með eggaldini og graskersmús

Mamma benti mér á að það væri hægt að kaupa góðan frosinn salfisk í bitum í Bónus. Ég valdi saltfiskssporða, beinlausa með roði.

Ég er mjög sátt með útkomuna og mun pottþétt elda saltfisk oftar á næstunni.

Eldaði nánast frosna sporða í eldföstu móti á 180°C heitum ofni í 15 mínútur. Kryddaði og setti smá ólífuolíu í botninn á mótinu.

Sem meðlæti hafði ég graskersmús og steikt eggaldin.

Leave a Comment