Enn ein útgáfan af pönnuköku og nú með steiktum plómum.
Pönnukaka:
- 1 egg
- 15 g sojamjöl
- Matarsódi á hnífsoddi
- Sykurlaust vanillu síróp
- Sítrónudopar úr flösku (5 dropar)
Blanda öllu vel saman í skál og steikja á pönnu á hvorri hlið í ca. 2 mínútur.
Plómur:
- 240 g plómur
- 1 tsk sykurlaus strásæta
Steinninn fjarlægður úr plómunum og plómur skornar í báta. Plómurnar eru steiktar á pönnu úr smá olíu og strásætu stráð yfir.
Grísk jógúrt:
- 100 g grísk jógúrt
- French Vanilla sykurlaust síróp – góð skvetta, amk. 2 msk.
- Hermesetas fljótandi sætuefni, amk. 1,5 tsk
Hræra allt vel saman og smakka til hvort jógúrtin sé nægilega sæt á bragðið.