Ommiletta með skinku og osti

Ommiletta með skinku og osti er fljótlegur og góður morgunmatur.

Ommiletta:

  • 1 stórt egg
  • Herbamare salt og pipar
  • Best á allt kryddið frá Pottagöldrum
  • 20 g  skinka (98%)
  • 10g ostur t.d. Gouda eða Maribo

Pískið saman eggið og kryddið. Hitið Avókadó olíu á pönnukökupönnu eða pönnu af sambærilegri stærð. Skerið skinkuna í bita og steikið létt upp úr olíunni til að fá gott steikingarbragð af skinkunni. Hellið því næst deiginu út á pönnuna og látið dreifast vel um alla pönnuna. Setið ostinn út á og eldið þar til ommilettan er elduð í gegn og osturinn bráðnaður.

Það er svo tilvalið að fá sér greipkrap með sem ávöxt með morgunmatnum.

Þá passar að ég á eftir 80g af mjólk út í kaffið.

image

image

image

Leave a Comment