Hér er tilvalin morgunverðarmúffa sem borin er fram með hreinu skyri sem er bragðbætt með sykurlausu vanillu sýrópi.
- 1 lítið egg (50 g)
- 25 g sojamjöl
- 1/2 tsp matarsódi
- 1-2 msk Canderel sæta
- 20 g mjólk
- 1 msk sykurlaus vanillu sýróp
- 1/2 tsk vanillukorn
Blandið öllum hráefnunum saman t.d. í stórum bolla og hræri vel svo ekki séu kekkir í deginu. Múffan er svo bökuð í örbylgjuofni í ca. 2 mínútur. Ég eldaði mína múffu í 2:10 í 850W örbylgjuofni.
Blandið saman 80 g skyri og sykurlausu vanillusýrópi og setjið út á múffuna þegar hún er tilbúin.
Það er svo tilvalið að fá sér kaffi með 80 g af flóaðri gmjólk á eftir múffunni.