Ég lét loksins verða af því að gera frappochino og þessi vanillu lattefrappó er alveg sjúklega góður skal ég segja ykkur.
Aðferð:
Instant kaffi gert úr 1 dl heitu vatni og 2 tsk af kaffi. Kaffið er kælt í ísskáp þar til það er orðið fingurvolgt.
Sett í blandara ásamt 80g af g-mjólk og einu glasi af klaka og hrært á hæsta styrk í um hálfa mínútu.
Bæta svo við sykurlausu French Vanilla sírópi og skvettu af Hermesetas fljótandi sætuefni, allt eftir smekk. Hræra því vel saman við og skella svo öllu í glas.
Getur einnig verið gott að setja 5-10 g af soja sprauturjóma ef fólk má fá sér svoleiðis.