Það er algjörlega nauðsynlegt að kunna að gera kímbrauð í örbylgjuofni til að redda sér. Hér er útgáfa af kímbrauði úr 30 g af hveitikími.
Innihald:
- 30 g hveitikím
- 1 tsk sesam fræ
- 1 tsk sesammjöl
- Herbamare
- Best á allt krydd (eða sambærilegt)
- 80 ml af heitu vatni
Öllu blandað saman í skjál þannig að úr verður þykkur grautur samt hæfilega balutur svo auðvelt er að smyrja honum á disk sem má fara í örbylgjuofn.
Ég set smá olíu á diskinn til að koma í veg fyrir að brauðið festist við diskinn.
Því næst sting ég brauðinu í örbylgjuofn og baka það í 3 mín á annarri hliðinni. Svo sný ég því við og baka í allt að 1 mín. í viðbót á hinni hliðinni eða þar til brauðið er bakað í gegn.
Því næst set ég brauðið í margnota samlokupoka fyrir brauðrista. Þetta geri ég aðallega til að koma í veg fyrir að fræin hrinji ekki öll af brauðin í brauðristina. Rista brauðið þannig að það verður smá stökkt.
Pingback: Hörpuskel og risarækjur með hvítlauk, sveppum og salati – Plenty Sweet
Pingback: Risarækjur með klettakáli og kímbrauði - Plenty Sweet