Kímbrauð – Flatbrauð (30g)

Þessi uppskrift finnst mér best fyrir 30 gramma sneiðar af kímbrauði.

Ég baka að lágmarki fjögur brauð í einu sem passa á eina ofnplötu.

Innihald:

  • 30 hveitikím
  • 1 tsk sesam fræ
  • 1 tsk sesam mjöl
  • 1/2 tsk kúmen
  • Herbamare salt
  • Best á allt krydd
  • 60-80 ml af heitu vatni

Öllum innihaldsefnum blandað saman í skjál svo úr verður þykkur grautur. Ég pensla margnota bökunarpappír með avókadóolíu og mynda síðan ferköntuð brauð á ofnplötuna. Ég strái hvítum og svörtum sesam fræum yfir hvert brauð til að skreyta. Stundum nota ég kúmen fræ í staðinn.

Ofinn er hafður á 180-200°C og bakað í ca. 35 mínútur. Ég baka brauðið venjulega fyrst í 30 mín og sný því svo við og baka í 5-10 mínútur í viðbót.

image

image

image

image

Leave a Comment