Þetta er líklega einfaldasti og hollasti ís sem hægt er að ímynda sér. 240 g frosin jarðaber og 100 g af hreinu skyri. Sett í skál og svo er töfrasporti notaður til að mauka berin og blanda saman við skyrið. Ég set smá Stevíu eða Hermesetas sætuefni út í til að fá aðeins sætara bragð, sérstaklega ef berin eru í súrara lagi. Það besta við þennan ís er að ég fæ mér hann í morgunmat.