Ég elska pizzur með pepperoni og sveppum. Svona geri ég uppáhaldspizzuna mína.
Pizzubotn:
- 40 g hveitikím
- 1 tsk sesam fræ
- 1 tsk sesammjöl
- 1 tsk pizza krydd
- Herbamare salt
- 1 dl heitt vatn
Öllu blandað vel saman í skjál. Deigið er sett á ofnplötu með margnota bökunarpappír. Ég pensla oft papprínn með avókadóolíu til öryggis.
Deigið er mótað í hringlaga pizzubotn og svo aðeins meira pizzukrydd yfir.
Botninn er bakaður í ca. 20 mínútur og svo tekinn út og álegginu raðað á.
Álegg á pizzu:
- 1 msk Huntz pizzasósa
- 30 g pepperoni
- 30 g hakk
- 30 g feta ostur
- 15 g rifinn mozzarella ostur í grænu pokunum frá MS eða Piparostur (ath velja ost án sterkju)
- Sveppir 50 g
- Rauðlaukur 30 g
Öllu raðaða á pizzuna og kryddað með smá pizza kryddi eða oregano. Aftur inn í ofn við 180-200°C í ca. 15 mínútur.
Borðist svo með 80 grömmum af fersku salati, gúrkum og tómmötum