AB mjólk með eplum og Sukrin Gold

Ég fæ hálfgert nostalgíukast þegar ég fæ mér AB mjólk með eplum og sykurlausum púðursykri frá Sukrin Gold. Þetta minnir mig mjög mikið á þegar ég hrúgaði púðursykri í súrmjólkina mína sem krakki. Ég fékk mér yfirleitt 3 matskeiðar af púðursykri út á súrmjólk – jæks.

Ég hef alltaf átt erfitt með súra bragðið í sýrðum mjólkurvörum en sem betur fer klígjar mig við of sætum mat í dag. Núna dugar 1 teskeið af Sukrin Gold út á AB mjólkina.

Innihald:

  • 1 rautt epli – niðurskorið í bita
  • 120 g AB mjólk
  • Hermesetas sæta
  • Skvetta af sykurlausu vanillu sírópi
  • 1 tsk Sukrin Gold sykurlaus púðursykur

 

Leave a Comment